Ég er eiginlega orðin alger brjálæðingur á hjólinu mínu ég set lappirnar upp á slánna og renni mér á fullu farti niður brekkur og skransa svo í lokinn. Mömmu finnst þetta nú einum offfff. En ég er allavega mjög dugleg að hjóla það er eitt sem víst er. Mamma fór að kaupa takkaskó á Bergstein í gær og keypti fyrir mig líka, kannski fæ ég að æfa fótbolta í sumar nefnilega. Ég er alger rúsína í þessu og svo á ég líka legghlífar og ég er ótrúlegur trítill í þessu, ég er náttlega grallari af guðsnáð!!! Guð er líka kona ef þið vissuð það ekki.
Í þessari viku er búið að vera heldur mikið að gera hjá mér, það er nefnilega vorskóli í gangi fyrir okkur sem erum að fara að byrja í 1. bekk í haust. þannig að ég fer ásamt mínum tilvonandi bekkjarfélögum í skólann frá 13 til 15:30 og fer í hinar ýmsu námsgreinar og hitti kennarana mína og skoða skólann. Mjög skemmtilegt og svo þegar það er búið kemur mamma að sækja mig og ég fer heim og fæ mér smá í gogginn og hendist svo á sundnámskeið. Ég sofna mjög ljúft á kvöldin.
Planið er að fara að grallarast með pabba og Begga bróður upp í sumarbústað hjá ömmu og afa um helgina, það verður örugglega mjög gaman. Vonandi verður líka gott veður. Kannski förum við á Ísöld 2 í bíó þar sem ég vann 2 miða hjá landsbankanum vegana þess að ég er svo dugleg að spara reglulega.
Bið að heilsa í bili. Kossar og knús
Tinna sæta