TINNA GUÐRÚN BLOGGAR

maí 17, 2006

Hér er mikið fjör og gaman

Filed under: Uncategorized — tinna @ 11:01 am

Ég er eiginlega orðin alger brjálæðingur á hjólinu mínu ég set lappirnar upp á slánna og renni mér á fullu farti niður brekkur og skransa svo í lokinn. Mömmu finnst þetta nú einum offfff. En ég er allavega mjög dugleg að hjóla það er eitt sem víst er. Mamma fór að kaupa takkaskó á Bergstein í gær og keypti fyrir mig líka, kannski fæ ég að æfa fótbolta í sumar nefnilega. Ég er alger rúsína í þessu og svo á ég líka legghlífar og ég er ótrúlegur trítill í þessu, ég er náttlega grallari af guðsnáð!!! Guð er líka kona ef þið vissuð  það ekki.

 Í þessari viku er búið að vera heldur mikið að gera hjá mér, það er nefnilega vorskóli í gangi fyrir okkur sem erum að fara að byrja í 1. bekk í haust. þannig að ég fer ásamt mínum tilvonandi bekkjarfélögum í skólann frá 13 til 15:30 og fer í hinar ýmsu námsgreinar og hitti kennarana mína og skoða skólann. Mjög skemmtilegt og svo þegar það er búið kemur mamma að sækja mig og ég fer heim og fæ mér smá í gogginn og hendist svo á sundnámskeið. Ég sofna mjög ljúft á kvöldin. 

Planið er að fara að grallarast með pabba og Begga bróður upp í sumarbústað hjá ömmu og afa um helgina, það verður örugglega mjög gaman. Vonandi verður líka gott veður. Kannski förum við á Ísöld 2 í bíó þar sem ég vann 2 miða hjá landsbankanum vegana þess að ég er svo dugleg að spara reglulega.

Bið að heilsa í bili. Kossar og knús

Tinna sæta 

1 ummæli »

  1. hææ hææ Skvís =)mér heirist að ég verði að fara að passa mig þú ert öruglega orðin betri en ég á hjólinu þínu en þú bara fara í skóla og allt í haust voðalega ertu orðin stór er ekki að hafa þetta lengra kv.Inga Lára

    Comment af Inga Lára — júní 1, 2006 @ 10:58 am


RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Theme: Rubric. Bloggaðu hjá WordPress.com.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.